Hraun Hestar hestferðir frá Landmannalaugum
Upphafið
Hraun Hestar hófu starfsemi 1996 með sex daga ferð inn á hálendið. Lagt var upp frá Lýtingsstöðum og farið að Skarði á fyrsta degi. Á öðrum degi var riðið inní Áfangagil, þriðja dag í Hrauneyjar og gist í gangnamannahúsi á Tungunum. Fjórða dag var riðið inní Landmannahellir um Dyngjuskarð. Fimmti dagur var notaður í að ríða í Landmannalaugar og fara í bað þar og skoða sig um, síðan riðið til baka í Hellir. Sjötti dag var riðið áleiðis heim og reið ferðafólkið niður að Galtalæk en var keyrt þaðan að Laugalandi, þar var snæddur síðasti sameiginlegi kvöldverðurinn og hópurinn kvaddur. Ekki var þessi ferð í sjálfu sér frásöguverð nema að farastjórinn fótbrotnað tveimur dögum fyrir ferð og voru góð ráð dýr. Það vildi svo vel til að tvær góðar frænkur mínar ætluðu að fara með og redduðu þær ferðinni alveg. Anna í Fosshólum ætlaði að fara í skemmtiferð en endaði á að fara sem farastjóri og yfirkokkur í þessari ferð og Eydís Tómasdóttir systir dóttir mín aðeins 12 ára var hestasveinn ég undirrituð var höfð í bílnum.
Hraun Hestar byrjuðu með hestaferðir úr Landmannalaugum 1998.
Eigandi Hraun Hesta er Guðný Eiríksdóttir frá Lýtingsstöðum. Holtum.
http://www.rang.is/ferda/hraunhestar.htm
|